Önnur hæfni
Almennt
Ég hef setið ýmis konar námskeið í mannrækt.
Ég sótti Rauða kross námskeið í viðtalstækni og sálrænni skyndihjálp meðal annars árið 2004.
Ég náði fréttamannaprófi RÚV í mars 2004.
Ég sótti Dale Carnegie námskeið: Leiðtogaþjálfun og árangursrík samskipti haustið 2001.
Tölvur
Góð þekking á og reynsla af notkun á MS Word, Excel, PowerPoint og FrontPage. CorelDraw, Adobe Photoshop, Illustrator and GoLive. HTML, XHTML og Macromedia (nú Adobe) Dreamweaver, Fireworks, Flash, Director - Apple's Final Cut Pro, Digidesign's Pro Tools auk JBuilder og Java.
Tungumál
Tala íslensku og ensku reiprennandi. Get lesið dönsku, sænsku og norsku allvel og stautað fram úr þýsku. Hef hinsvegar litla reynslu í að tala og skrifa þessi mál.
Félagsstörf
Formaður foreldrafélags Hlíðaskóla veturinn '09-'10.
Vefstjóri heimasíðu Athugasemdar (vefsíðu nemendafélags hagnýtrar fjölmiðlunar HÍ) 2002-3. Gjaldkeri FENs félags enskunema við HÍ 1997-1999. Gjaldkeri útskriftarhóps Fjölbrautaskólans við Ármúla vor '96. Ég hef tekið þátt í félagslífi alla mína skólagöngu og var meðal annars í nemendaráði í 8. bekk og formaður nemendaráðs í 9. bekk ('88-90). Ég var bekkjarfulltrúi í Hlíðaskóla og í foreldrafélagi Sólhlíðar.
Áhugamál
Ég hef mikinn áhuga á bókmenntum, kvikmyndum og allskyns sjónvarpsefni. Ég hef einnig áhuga á hönnun allskonar og ljósmyndun. Ég stunda reglulega líkamsrækt og hugrækt. Aðhyllist heilbrigðan lífstíl.
Skrif
Ég hef bloggað frá árinu 2002. Skrifa öðru hvoru á Miðjuna. Ég sat í ritstjórn Stúdentablaðsins (HÍ) veturinn 2003-4 og skrifaði þó nokkrar greinar fyrir blaðið. Hef átt birtar greinar í Morgunblaðinu og DV-Magasin í tengslum við nám mitt í hagnýtri fjölmiðlun. Þá birtist grein eftir mig í bíóblaði (ekki langlífu) um Bridget Jones' Diary.
Post new comment