Alger gufa
Submitted by khh on 12 March, 2010 - 14:20hef verið að fara í gufu í hádeginu með vinnufélögunum. Það sem það gerir manni gott.
District 9
Submitted by khh on 9 March, 2010 - 22:23Sá í gærkvöldi myndina District 9 og hún kom mér virkilega skemmtilega á óvart. Ég hafði heyrt því fleygt að hún og Avatar væru með svipaðan söguþráð og það er ýmislegt til í því (geimverur, mennirnir frekir og stjórnsamir, einn sem áður á móti verður með etc.) en myndirnar eru engu að síður eins ólíkar og hægt er.
Avatar er vissulega ágætlega flott en frekar leiðinleg og fyrirsjáanleg (það var ekkert sem kom á óvart í henni) meðan að District 9 er unnin eins og heimildamynd, tekin í Suður-Afríku, skemmtilegt að heyra Suður-afríska hreiminn og eins og ég áður sagði kom á óvart. Ég kom líka sjálfri mér á óvart með það hvað ég hafði gaman af "splatternum" í henni. Ég viðkvæma sálin :o)
Rabbie Burns
Submitted by khh on 24 January, 2010 - 01:02Some hae meat and canna eat,
And some wad eat that want it;
But we hae meat, and we can eat,
Sae let the Lord be thankit.
Have haggis, neeps, and tatties coming out of my ears.
Had a great night dancing Scottish dances as well as eating too much. Will be repeated again next year.
Stuðningsyfirlýsing við Elfi Logadóttur
Submitted by khh on 15 January, 2010 - 22:22Ég lýsi hér með yfir stuðningi við Elfi Logadóttur í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Ég hef þekkt Elfi í um 25 ár. Auk þess að vera virkilega hæf sökum menntunar og starfsreynslu og hafa víðtæka þekkingu á öllu mögulega þá er hún líka frábær vinkona sem er ávallt hægt að leita til þegar meta þarf hin ýmsu persónulega mál og aðstæður og hægt að treysta því að allar mögulegar lausnir séu skoðaðar, vegnar og metnar. Ég treysti henni 100%.
Græja vikunnar
Submitted by khh on 7 January, 2010 - 10:30Poladroid er frábær græja sem Sigga Dóra benti mér á.
Maður skellir bara gömlu myndunum sínum í græjuna og voila!
Myndin er af kommóðu sem mig langar svo ósköp mikið í og mun fjárfesta í næstu mánaðarmót.
Gleðilegt ár svona meðan ég man :)

