ja hér

geisp geisp
ótrúlegt að aðeins séu 10 dagar eftir af þessum mánuði...

Closer

Ef þið eruð ekki búin að sjá þessa mynd þá er hún algert "must see". Nemendum mínum til mikillar ánægju þá er ég heima við í dag að reyna að ná úr mér þessari pest og nota tækifærið við að horfa á efni sem safnast hefur upp. Mér hefur alltaf þótt mikið varið í Clive Owen en hér sannar hann að hann er magnaður og margslunginn leikari sem á öll sín verðlaun svo sannarlega skilin.
Ég man bara ekki hvenær ég var síðast svona agndofa yfir mynd... en eitt er víst að hún er svona fullorðins. Aðrir leikarar í myndinni eru Julia Roberts, Jude Law og Natalie Portman.

slappensí afensí

ég hef nú oft verið í betra formi en síðustu daga... hef það samt ægilega gott auðvitað og neita að vera veik heima.. nemendum mínum til mikillar ánægju ... eða þannig sko... hehehe :)

Blog eða story?!

Stöðugt fikt og prófin bíða enn í bunka á borðinu... skamm Kolbrún

Dagur tvö

er að læra inn á þetta nýja fína kerfi.
Ætti nú frekar að einbeita mér að fara yfir próf fremur en að fikta í þessu ;)

Nýja síðan mín

Gasalega smart. Framvegis verður ekkert bloggað meir á Blogger held ég því hér hef ég athvarf. Á eftir að fikta og læra en lítur spennó út.

Syndicate content