...rétt handan við hornið

...er árið 2010. Bara svona ef það hafði farið framhjá lesendum.

Það er annars skrýtinn tími sem kallar á það að jólaskraut ásamt fullskreyttum jólatrjám séu komin upp í Kringlunni áður en október er úti. Læt það vera þó lítilsháttar af jólavöru sé komin í verslanir en jólaskrautið allt mátti bíða til loka nóvember.

Ekki það ég kann alveg að meta ljósaseríur sér í lagi þessar úti við því þær létta skammdegið, átak Reykjavíkurborgar sem kallast því ótrúlega skemmtilega og sniðuga nafni (já þetta er kaldhæðni) ljómandi Reykjavík er til að mynda mjög þarft.

Annars bíð ég helst spennt eftir að Kostur Jón Geralds opni svo maður geti farið að skoða hverslags vöru hann ætlar að bjóða landsmönnum upp á í samkeppni sinni við þá Bónusfeðga (eða hverjir það eru nú sem eiga það blessaða fyrirtæki í dag).

Október

Fyrir sjö árum síðan greindist móðir mín með brjóstakrabbamein og varð að fjarlægja annað brjóstið og eitla í holhönd. Hún fór í gengum lyfjameðferð og geislameðferð auk þess að taka Tamoxifen í fimm ár. Nú er liðið eitt og hálft ár síðan að allri meðferð lauk og hún virðist að öllu leyti búin að jafna sig.

Ég hef undanfarin ár gert vefsíðuna bleika á einn eða annan hátt í októbermánuði sem vott um stuðning minn við baráttuna við brjóstakrabbamein.

Að þessu sinni hef ég ákveðið að láta það vera að gera síðuna bleika en tengi þess í stað hér við mynd sem bróðir vinkonu minnar tók af dóttur hennar í tengslum við herferð sem móðir þeirra hannaði. Mér finnst þessi mynd frábær.

Kristján Logason ljósmyndari tók þessa mynd

-/-

Ég elska tölvur!

Ég á þvottavél sem ég held að sé keypt árið 2000, svakalega flott með svona tölvuborði, sýnir tímann sem er eftir, er með time delay etc. sumsé tölva - annars lagið frýs hún og þá þarf ég að taka hana úr sambandi í nokkra daga -einskonar reboot- og svo smellur hún í gang aftur.

Ég held í hvert sinn sem hún "frýs" að nú sé hún búin að syngja sitt síðasta og fer á netið og skoða hvað ný þvottavél kostar. Nú síðast fraus vélin á föstudaginn og ég skellti mér því á netið í gærkvöld og skoðaði. Skulum orða það þannig að ég er rosa glöð að hún hrökk í gang aftur í dag :)

Í vor var ég stödd í Elko, þá var þvottavélin reyndar alveg róleg en ég ákvað að kíkja á vélar og spjalla við afgreiðslumann um þvottavélar - hann sagði mér að endingartími þvottavéla væri ekki nema svona 10 ár!! Mér finnst það nú ekki mjög góð framleiðsla.

En svona fyrst ég er farin að spjalla um neytendamál, þá versla ég stundum í Bónus og nánast undantekningalaust kaupi ég 2l Kristal. Fyrir rúmum tveimur vikum keypti ég flöskuna á 149 kr. í Bónus í Kringlunni, viku seinna keypti ég flöskuna á 169 kr. í Bónus vestur í bæ og nú síðast á föstudaginn fór ég í Bónus við Hallveigarstíg og borgaði 198 kr. fyrir stykkið! Finnst einhverjum þetta eðlileg hækkun?!

1995 flashback

Var að horfa á einhverja auglýsingu í sjónvarpinu þar sem sást í Iðnskólann í Reykjavík og mundi þá allt í einu eftir degi einum sumarið 1995. Þá var ég í sumarskóla í Iðnskólanum sem var í boði fyrir atvinnulausa og boðið var upp á gæslu fyrir börn þeirra sem skólann sóttu.

Unnur Helga er þvi þarna ekki orðin 2 ára enda fædd að hausti og fyrsta daginn sem ég kom með krúttið með mér og ákvað að prófa gæsluna gekk allt vel eða þar til ég kom að sækja hana. Þá var barnið nefnilega horfið!! Ég fékk "hland fyrir hjartað" eins og sagt er og æddi út að leita að barninu og fann hana á harðahlaupum niður Frakkastíginn. Litli prakkarinn var aldeilis ánægður með sig :)

Ég þakka bara fyrir það að hafa ekki komið seinna að sækja hana því það hafði enginn áttað sig á því að hún var horfin fyrr en ég kom.

Unnur á það enn til að prakkarast við móður sína þó ég fái æ sjaldnar "hland fyrir hjartað" útaf henni enda nálgast 16 ára afmælisdagurinn óðfluga.

Í öðrum fréttum þá þurfti ég (æ mig auma) að fara snemma úr vinnunni í dag og taka á móti ungum manni frá Vodafone en tilgangurinn með komu hans var að tengja Vodafone þjónustuna alla við hið fagra ljósleiðarabox sem sett var upp í síðustu viku hjá mér.

Nú þar sem ég gat ekki unnið á meðan hann dundaði sér við að tengja og ég var ekki búin á því eftir langan vinnudag (enda klukkan bara 3) og veðrið yndislegt og þar fram eftir götunum þá lét ég loks verða af þvi sem ég hafði lengi ætlað mér eða að flytja skrifborðið úr stofunni inn í svefnherbergi og fína borðið frá langömmu fram í stofu og fyrst ég var nú farin af stað með húsgögn þá breytti ég fleiru í svefnherberginu, ma. legu rúmsins.

Gasalega fínt orðið hjá mér :) verður forvitnilegt að vita hvernig ég sef svo í nýju skipulagi!

Unnur

Unnur

Óðinn Harri litli sætastur

Óðinn Harri litli sætastur

Óðinn Harri greiðir móður sinni

Óðinn Harri greiðir móður sinni

Dóttirin eignast bíl!

Dóttirin eignast bíl!

Pabbi keypti bíl handa stúlkubarninu sem verður ekki 16 ára fyrr en í haust. Bíllinn er að sjálfsögðu tjónaður (voða sætur Fiat Panda) en áætlað er að koma honum í ökufært horf áður en stúlkubarnið fær æfingaakstursleyfið í haust.
Hún brosir allan hringinn þessa dagana!

Fór til London

Fór til London


Skrapp til London um daginn, hrikalega gott að komast aðeins í nýtt umhverfi, ég æddi um borgina þvera og endilanga en aðallega samt bara um Covent Garden og Soho :) auk þess að eyða part úr degi á Oxford Street.

Við (ég og Elfur) vorum á mjög næs punktahóteli (kostaði alveg marga punkta)sem er staðsett við Seven Dials Covent Garden.

Kaffistofuspjall

Sat frammi á kaffistofu rétt áðan og þar kom upp umræða um stöðumælasektir. Var þá bent á sniðuga lausn við að greiða í stöðumæla en með því að fara á síðuna Leggja.is þá er hægt að skrá sig þar og greiða svo í stöðumæli með farsímanum sínum.

Á eftir að prófa þetta sjálf en skilst að þetta sé stórsniðugt.

Syndicate content