Maí að verða liðinn
Submitted by khh on 26 May, 2008 - 23:28Mikið hefur gengið á í afmælisboðum undanfarnar vikur og hefur það að sjálfsögðu bara verið gaman. Dagga systir átti afmæli í dag, Ástþór Smári stjúpsonur hennar í fyrradag, þar á undan Óðinn minn þann 20. og Íris vinkona, Kristín vinkona var 19. maí og ýmsir aðrir auk mín og pabba að sjálfsögðu. Nú svo á Sigga Dóra afmæli 29. maí og Reynir frændi 31. maí. Ekkert nema naut og tvíburar í kringum mig.
Ég lauk störfum hjá setrinu á föstudaginn var (þvílíkur léttir) og hef störf hjá borginni á miðvikudaginn kemur. Ég tók einnig þá ákvörðun að hætta að kenna við HÍ sem stundakennari og einbeita mér að einni vinnu og gefa mér sjálfri kannski færi á að eiga eitthvað líf utan vinnu og barnauppeldis.
Skrýtnar en góðar tilfinningar fylgdu í kjölfarið og líður varla sá dagur núna án þess að ég upplifi einhverskonar létti.
Nú ef ég get hætt á kolvetnafylleríi síðustu daga þá mun ég líklegast upplifa annarskonar létti líka mjög fljótlega ;)
Being happy is a state of mind!
Submitted by khh on 15 May, 2008 - 22:52According to the English language I am now in my late thirties which beats the horrible Icelandic way of claiming that I'm in my forties (meaning that I'm heading to my forties). I decided to actually celebrate my 35th birthday and at the same time my MSc, moving back, and moving in AND my new job! So many, many women came and celebrated with me, I got great gifts, had a great time and hopefully so did all the women that came :) Thank you all!
Back to my countdown:
5 days until Óðinn turns 9.
8 days until I leave my current job.
13 days until I start my new job.
1826 days until I turn 40.
Niðurtalningar.
Submitted by khh on 7 May, 2008 - 23:02Í dag eru 5 dagar þar til ég á afmæli...
Í dag á ég eftir 11 vinnudaga í gömlu vinnunni...
Í dag eru 3 vikur þar til ég byrja í nýrri vinnu...
Í dag er ég hamingjusöm...
Meðvirkni
Submitted by khh on 1 April, 2008 - 12:10“Meðvirkur er sá sem hefur látið hegðun annarrar manneskju hafa áhrif á sig og er heltekinn af því að breyta hegðun þeirrar manneskju”.
Svona í lok mars....
Submitted by khh on 30 March, 2008 - 13:00... það gengur allt sinn vanagang. Ég bloggaði aðeins á Moggablogginu um daginn þar sem ég vildi tengja það við frétt á mbl.is - hægt er að kíkja á það hér á Moggabloggi Kolbrúnar.
Ég sagðu upp störfum hjá setrinu þegar ég og unglíngurinn snérum heim úr för til Nýju-Jórvíkur í byrjun mars og er því að horfa í kringum mig eftir meira spennandi starfi en ég sinni þarna.
Við Edda Lára ætlum ásamt börnum 10 ára og yngri að dvelja í tvær vikur í strandarbænum Brighton í byrjun júlí og svo ætlum við Óðinn að kíkja upp til Edinborgar í nokkra daga áður en við snúum aftur úr sumarfríi.

tekin af http://www.brightondirect.com/

