Íslenska
District 9
Submitted by khh on 9 March, 2010 - 22:23Sá í gærkvöldi myndina District 9 og hún kom mér virkilega skemmtilega á óvart. Ég hafði heyrt því fleygt að hún og Avatar væru með svipaðan söguþráð og það er ýmislegt til í því (geimverur, mennirnir frekir og stjórnsamir, einn sem áður á móti verður með etc.) en myndirnar eru engu að síður eins ólíkar og hægt er.
Avatar er vissulega ágætlega flott en frekar leiðinleg og fyrirsjáanleg (það var ekkert sem kom á óvart í henni) meðan að District 9 er unnin eins og heimildamynd, tekin í Suður-Afríku, skemmtilegt að heyra Suður-afríska hreiminn og eins og ég áður sagði kom á óvart. Ég kom líka sjálfri mér á óvart með það hvað ég hafði gaman af "splatternum" í henni. Ég viðkvæma sálin :o)
Stuðningsyfirlýsing við Elfi Logadóttur
Submitted by khh on 15 January, 2010 - 22:22Ég lýsi hér með yfir stuðningi við Elfi Logadóttur í 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Ég hef þekkt Elfi í um 25 ár. Auk þess að vera virkilega hæf sökum menntunar og starfsreynslu og hafa víðtæka þekkingu á öllu mögulega þá er hún líka frábær vinkona sem er ávallt hægt að leita til þegar meta þarf hin ýmsu persónulega mál og aðstæður og hægt að treysta því að allar mögulegar lausnir séu skoðaðar, vegnar og metnar. Ég treysti henni 100%.
Miðjan
Submitted by khh on 14 December, 2009 - 16:07Skráði mig sem penna á Miðjunni og sendi inn smá pistil svona til að byrja einhvernveginn strax. Krimmar og annað fólk.