Personal

My own personal opinions on things that don't really matter

John Cusack

"the unconventional hero" er orðinn fertugur. Þýðir það að ég sé að verða gömul líka :) tók Say Anything um daginn, skömm að segja að það var í fyrsta sinn sem ég sá hana ... hef hinsvegar séð hann í ansi mörgum öðrum myndum :) mér fannst hann sérstaklega góður í Grosse Point Blank og High Fidelity. EN er að pakka á fullu. Later guys...

Ég trúi...

að ef ég vil eitthvað nógu heitt að þá gerist það... hingað til hef ég ekki verið tilbúin að vilja neitt (skiljist ákveðna hluti) nógu heitt og þar af leiðandi ekki fengið... einhversstaðar segir að góðir hlutir berist þeim sem bíða, ég held að góðir hlutir gerist ef maður vill þá nógu heitt og áttar sig á því þegar tækifærið býðst og er með nógu mikla meðvitund til að segja já takk en ekki hmmm, best að hugsa málið :) eins og ég geri svo ægilega oft... svo er ég svo lengi að hugsa mig um að þegar ég hef loksins tekið ákvörðun þá hef ég misst af tækifærinum... en eníhú til að gefa ykkur tóninn þá er núna glampandi sól, 22 gráður, opnir gluggar og Nina Simone á fóninum, ég ætla að halda áfram að taka til...

Jason Lee

Í vikufríinu mínu sem ég hef tekið mér ákvað ég að horfa á My Name is Earl. Ég gaf mér það ekki í vetur að fylgjast með þeim en mikið eru þetta skemmtilegir þættir. Ég hef alltaf verið hrifin af Jason Lee og meðan aðrar hafa fallið fyrir Matt Damon og Ben Affleck þá fílaði ég þá aldrei neitt. Jason Lee er minn maður :)

annars er bara lítið að frétta. er að jafna mig eftir átök vetrarins og að undirbúa mig fyrir lokaverkefnið ... er farin að hlakka til að koma heim til Íslands aftur þó að það sé enn dágóður tími í að það verði.

countdown

Jæja, nú er þessari önn að ljúka. Próf á morgun í Future media, og á föstudaginn er Personal, Home and Ubiquoitous Technologies próf. Ég þarf reyndar að sitja resit í Java á fimmtudaginn þar sem ég ásamt næstum öllum hinum í kúrsinum gat ekki klárað verkefnið á réttum tíma. Mig vantar reyndar eiginlega bara eina funktjón upp á að geta skilað og náð örugglega en þessi funktjón vefst ægilega fyrir mér. Og er þessvegna hrædd um að ná því ekki þar sem ég er eins og áður sagði í tveimur prófum líka sitt hvoru megin við resittið auk þess að hafa náð mér í hálsbólgu frá helv... á laugardaginn og er enn hundslöpp. Ég get varla talað sem er kannski bara gott hehe. Þar sem ég sé ekki fram á að ná að ljúka lokaverkefninu í september heldur - þá er kannski bara spurning að sitja þetta Java í sumar. Ég var víst helst til bjartsýn að halda að ég gæti klárað... en kennararnir hérna segja mér að það sé mjög erfitt að ná því vegna sumarfría kennara og þess háttar. Ég er kannski búin að röfla þetta allt áður hérna inni en ég veit ekki hversu mikið ég er að skrifa þetta fyrir aðra en mig þar sem feedback er í svo litlu magni.

update

Heimferðin heppnaðist nánast að öllu leyti vel. Náði að hitta lygilega mikið af fólki og átti góðar stundir. Það var að sjálfsögðu erfitt að skilja við perluna mína hana Unni en við Óðinn vorum ánægð að koma heim. Eins og Óðinn sagði þegar við gengum inn í íbúðina, æ hvað er gott að vera komin heim á skoska heimilið mitt. Æ hann er svo mikil dúlla.

Veðrið leikur við okkur. Hér er heldur betur vor í lofti og Óðinn fór hæstánægður í skólann í dag bara á peysunni. Og ég er svei mér þá farin að fá örlítinn lit í kinnarnar. Framundan er Bank Holiday helgi sem þýðir frí á mánudaginn og við Óðinn stefnum á að skreppa eitthvað útfyrir borgina með vinafólki okkar sem býr niður í Manchester eða þar nálægt.

Ísland, fagra Ísland

Jæja, ég verð á landinu þangað til aðfararnótt sunnudags og með gemsann 821-9984 - lendi um hádegi á morgun (fimmtudag).

Planið er að fara á eitthvað næs kaffihús á föstudagskvöldið og vona að þeir sem vilja hitta mig sjái sér fært að mæta - ég verð svo rosa stutt. Á eitthvað erfitt með að ákveða mig samt með stað þar sem að það er svo langt síðan ég hef verið heima. Pæling með Café Paris ef búið er að opna eftir breytingar eða Thorvaldsen hef samt alltaf verið meiri Laugarvegsrotta :)

Sendi text á föstudaginn þegar ég verð búin að ákveða mig og/eða set uppl. hér inn.

Hey'all

Þá eru krakkarnir farnir til Íslands og ég ein í kotinu. Ég verð að viðurkenna að hafa fundið til nokkurrar tilfinningasemi yfir þessi öllu saman. Það er skrýtið að litla stelpan mín ætlar ekki að koma hingað aftur til mín. En ég kem heim 20. apríl að sækja Óðin og vonandi næ ég að sjá sem flesta - er að hugsa um fara á eitthvað kaffihús á föstudagskvöldinu og benda fólki á að hitta mig þar ef það hefur áhuga. Veit ekki hvað væri sniðugt samt. Ég og Óðinn höldum svo út aftur á sunnudagsmorgninum 23. apríl til að klára dæmið.

Það er alltaf nóg að gera og ég er að setja upp stundaskrá fyrir mig til að klára öll mín verkefni fyrir skiladaga sem eru 11. og 18. maí og svo tek ég próf í síðustu tveimur vikunum í maí líka. Eins hef ég um margt að hugsa varðandi framtíðina. Ég þarf að skipuleggja "dissertation" og hvernig ég ætla að fara að þessu. Mig hefði gjarna langað að vera hér lengur en það er flókið að hugsa um það þar sem að ég á börnin mín ekki ein og Unnur er nú þegar farin og ég veit ekki hvað Jónas myndi segja ef ég óskaði eftir að hafa Óðin hér lengur. Óðinn er reyndar ofboðslega ánægður hérna og vill bara vera með mömmu sinni en auðvitað elskar hann að vera með pabba sínum líka. Ég fer náttúrulega ekki að vera hér bara til að vera hér en ef mér býðst gott tækifæri þá mun ég svo sannarlega skoða það. Annars er ég byrjuð að kynna mér íbúðar- og vinnumál heima líka og reikna með að þetta komist allt á hreint fyrir lok annar. Ég stefni á að taka lokaritgerðina/verkefnið í full-time og á lánum sem þýðir að ég verð hér að mestu út sumarið. Ég er með íbúðina út júní og það er nóg pláss núna þar sem við Óðinn erum bara tvö ein svo ef einhvern langar að kíkja á borgina þá er hér hægt að fá billega gistingu :)

Speaking English now

Unnur and I woke up on Sunday morning and we could hear Óðinn playing alone in the living room. Nothing news worthy in it usually except this time he was playing in English!! Yes he now plays in English, he answers me sometimes in English and speaks to people without hesitation.

The kids are only 9 days away from going back to Iceland and I'll have to keep myself very busy studying. There is coursework to hand in on the 11th and 18th of May and then 2 exams some time late in May and then it will be time for my dissertation. However I have plans to go down to York and Harrogate to meet up with friends and former collegues from FÁ who will be in Harrogate in a conference. Then Edda Lára and her family will show up at my house on the 12th and stay for a few days over Easter. I invited my self over to the Rae's family on Easter Sunday to have traditional lamb and hopefully some Icelandic chocolate eggs. Yummy, they are sooo good.

Could I BE any more clumsy??!!!

forgot to mention that I managed to pull a tendon in my right arm doing housework on Sunday. Which hurts like hell (is getting better) and not good when you actually have to use a keyboard and mouse all day long... In case you're wondering... I was sweeping behind the sofa and had to push it back it got stuck on one of the floorboards and I decided to lift it slightly with my right arm to get it up against the wall - I've done this before but this time I could just hear it kind of stretch and snap (not that it snapped but you get the image) - Lesson learned - never do housework, have your daughter do it ;) ah gives me a reason to forbid her to leave hehe

anyway tomorrow is a lovely Friday...

"I have Friday morning on my mind.." yet another lyric

21 days

Three weeks from now my daughter will move back to Iceland. She and her brother were going back that day anyways (31st March)for a spring/easter holiday but due to her unhappiness we've decided that she will not return. She will instead go and live with her dad on his farm near Kirkjubæjarklaustur it will do them good I'm sure. I will miss her of course and I would have preferred to have her stay but it will be an experience for Óðin and me to stay alone together. Unnur has had the "privilege" of living alone with me now it's his turn :) Spring seems to be here now. The snow has disappeared and I actually wore just a t-shirt and a jacket today instead of the normal sweater and wool-coat. I did keep my lovely orange scarf on though since it is still a little nippy. Got to go groceries are here!!
Syndicate content