Personal
Sumt fólk er bara ekki í lagi...
Submitted by khh on 15 September, 2005 - 11:49Svo virðist að þessi fasteignamál mín sem virtust svo frábær til að byrja með séu að breytast í farsa. Og það eru fleiri en einn sem að málinu koma (úr sitt hvorri áttinni) sem eru að haga sér eins og algerir #"&%$ - vil ekki ræða þetta neitt frekar á opnu svæði sem þessari síðu en ég er ansi sár og svekkt og BLÖNK :(
Fullorðin eða barn?
Submitted by khh on 11 September, 2005 - 12:55Þá er dóttirin orðin 12 ára sem þýðir að skyndilega er hún farin að þurfa að greiða fullorðinsfargjöld - allavega á Íslandi hjá Icelandair og Austurleiðum (Iceland Express er með 14 ára). Hér í Skotlandi hafa menn manndóm í sér og líta svo á að börn séu börn meðan að þau eru skólaskyld eða til 15 ára aldurs! Þá er sama hvort um ræðir strætó, lest, eða flugvél.
Fór í bíó
Submitted by khh on 9 September, 2005 - 20:50Fyrir valinu varð CRASH - stórfín mynd, fullt hús hreinlega.
Gott leikaralið, meðal annars Brendan Fraser, Sandra Bullock, Matt Dillon og Ryan Phillippe.
Asskoti ánægð með hvað ég er búin að sjá fínar myndir nýverið :)
afmælishrina
Submitted by khh on 7 September, 2005 - 12:54Já hún er hafin, reyndar fyrir nokkru síðan, en það er ótrúlegur fjöldi af meyjum í lífi mínu og okkar. Þetta byrjaði með því að Hjalti, barnsfaðir minn, átti afmæli 27. ágúst (reyndar þekki ég eina sem á afmæli 26. ágúst en við erum ekki í miklu sambandi), 31. ágúst varð svo fyrrum tengdamóðir mín 60 ára, 1. sept varð stjúpbróðir Unnar 16 ára, í gær átti Þórhalla nýja vinkonan okkar í Skotlandi afmæli og varð hún 6 ára, ég þekki tvær manneskjur sem eiga afmæli á morgun, mamma á afmæli 9. september, Unnur á afmæli 11. september (og bekkjarsystir hennar heima), held að ég muni það rétt að bróðir hennar mömmu eigi afmæli 13. september, Elfur vinkona 15. september, Kolla Holtó (gömul vinkona) á afmæli 20. sept og Rakel síðan 26. sept (en þá erum við komin yfir í Vogarmerkið).
afmæli framundan..
Submitted by khh on 6 September, 2005 - 13:39Unnur Helga á afmæli næstkomandi sunnudag og langar mig að benda áhugasömum á að sniðug leið til að koma afmælisgjöf til hennar er að panta hana á www.amazon.co.uk og láta senda gjöfina á heimilisfangið hér. Þeir bjóða upp á gjafapakkningar og allt!! Hún á Ipod Mini svo að fylgihlutir með honum gætu gengið, hún hefur gaman af þáttunum Charmed meðal annars og svo bara eitthvað skemmtilegt.
Deja Vu
Submitted by khh on 5 September, 2005 - 21:55Var ég búin að nefna það að Patrick Dempsey er ótrúlega flottur í Gray's Anatomy?
Hmmm, er það eitthvað augljóst að ég er búin að vera "single" of lengi :)
Ekki það, skoskir karlmenn eru ekki beinlínis ómyndarlegir.
Meðan ég man, ég fór í Ikea í dag. Keypti helling fyrir 101 pund (x114), stóðst ekki mátið og fór inn á Ikea.is og reiknaði saman hvað ég hefði borgað fyrir sömu vöru heima. Rétt um 21.000 kr. takk.
Annars nenni ég ekki að hanga í því endalaust að reikna og umreikna og vesenast, geri það bara meðan ég er að átta mig á verðlaginu hér.
Rúmið kallar!!
Sein til enn og aftur
Submitted by khh on 2 September, 2005 - 10:14...ég hef verið afskaplega sein til að upplifa ýmsar perlur í kvikmyndaheiminum en ég er glöð að hafa átt þessa inni. Ég semsagt var að enda við að horfa á Eternal Sunshine of the Spotless Mind og það er langt síðan ég hef verið svona ofboðslega heilluð - meira að segja Closer hafði ekki þessi áhrif á mig. Ég hef reyndar verið hrifin af öllum myndum Charlie Kauffman, ekki að þær séu margar, á reyndar eftir að sjá Human Nature. En þessi er þeirra allra best finnst mér. Hún er svo innileg og sönn, tilfinningalega séð. Þannig að ef þið eruð ekki búin að sjá hana - þá eigið þið gott inni.
Patrick Dempsey
Submitted by khh on 29 August, 2005 - 21:55...og Gray's Anatomy. Fyrsta sería var sýnd í Ameríku í fyrra. Ég er að byrja að fylgjast með henni núna í kvöld á LIVINGtv - líst vel á. Dempsey er ansk... heitur í þessum þætti. Í öðrum fréttum er að ég er loksins að losna við kvefið og fer núna að hafa orku/heilsu til að gera eitthvað. Ég reyndar hjálpaði nágrönnunum að tengjast netinu, strax komin í það hlutverk - Kolbrún tengjari :) hef hrikalega gaman af því finna út úr svona hlutum. Enda hlakka ég ægilega til þess að byrja í skólanum.
Man ekki hvort ég var búin að hrósa því að hér hinum megin við götuna (á sama stað og skólar krakkanna eru) eru endurvinnslugámar fyrir allt mögulegt. Svo að Sorpuhliðin minni verður viðhaldið. Er náttúrulega ekki í eðli mínu að henda dósum, plasti og pappír :) það er meira að segja gámur fyrir föt/skó.
Helgi
Submitted by khh on 20 August, 2005 - 10:25Veðrið er yndislegt, himininn heiðskír og borgin bíður eftir okkur.
Á föstudögum eru krakkarnir bara í skólanum til hádegis svo við röltum okkur um miðjan dag niður á Lothian Road og skelltum okkur í bíó klukkan 15.30. Krökkunum þótti kvikmyndahúsið (Odeon) ótrúlega fínt og við keyptum popp í "baðkari" og horfðum á Charlie and the Chocolate Factory. Þrælfín skemmtun. Ég var búin að gleyma alltof miklu af sögunni. Ég man að Sjónvarpið sýndi teiknimyndaseríu um Kalla og súkkulaðiverksmiðjuna sumarið 1985 og voru Úmpalúmparnir uppáhaldið mitt. Ég fór á Vopnafjörð þetta sumar og það voru strákar þaðan sem tóku þátt í hljómsveitakeppni í Atlavík undir nafninu Grandmaster gámur and the úmpalúmpas :)
Eftir myndina fórum við á Pizza Hut og röltum svo heim aftur og lentum í hellirigningu - svona ekta hitabeltisskúr :)
Ok. sko...
Submitted by khh on 30 May, 2005 - 22:04Hvað er með þessa Sylvíu Nótt eða hvað hún heitir þarna sem er að byrja með þátt á Skjá 1? það mætti halda að hún sé á einhverju í auglýsingunum. Kræst... hún er svo ömurleg að maður verður eiginlega að kíkja til að sjá hvað þetta snýst um... kannski er þetta útpælt!!!

